Mótakerfi fyrir pílufélög

Skráning, mótaraðir, greiðslur og staða leikja á vef félagsins. Þið haldið mótin og kerfið sér um utanumhaldið.

Í notkun hjá Píludeild Þórs á thorpila.is

Hýsing og uppfærslur innifaldar Ekkert stofngjald Skipt um pakka hvenær sem er Enginn binditími, tveggja mánaða uppsagnarfrestur

Samanburður

Allir pakkar keyra á sama kerfinu. Munurinn er hvaða hlutar þess eru opnir félaginu.

Aukapakki ofan á hvaða pakka sem er

Mótstjórn og útsending

Fyrir félög sem streyma mótum og vilja stýra öllu úr einni tölvu í salnum. Sett upp í samráði við félagið og verðlagt eftir umfangi.

  • Stofnar mót í DartConnect og tengir öll spjöld
  • Spjaldtölva við hvert spjald
  • Útsending með OBS beint á YouTube
  • Upplýsingar beint í síma mótstjóra
  • Krefst öflugrar borðtölvu á staðnum

Algengar spurningar

Hvernig virkar prufan?

Við setjum upp vef félagsins með merki og litum þess og félagið prófar hann í 7 daga með öllu sem pakkinn inniheldur. Ekkert er rukkað fyrr en félagið ákveður að halda áfram.

Þurfum við DartConnect?

Aðeins fyrir mótaraðir og leiki í beinni, þar sem úrslit og staða leikja eru sótt þaðan. Skráning og mótahald virka án þess.

Hver tekur við greiðslunum?

Félagið sjálft. Það semur við færsluhirði og greiðslurnar fara beint inn á reikning félagsins. Færslugjöld eru á kostnað félagsins.

Getum við skipt um pakka?

Já. Breytingin tekur gildi strax eða um næstu mánaðamót, eftir því sem hentar.

Hvað kostar ársáskrift?

Tífalt mánaðarverð. Félagið greiðir fyrir 10 mánuði og fær 12.

Er binditími?

Enginn binditími. Uppsagnarfrestur er tveir mánuðir.

Eru verð með virðisaukaskatti?

Nei, öll verð á síðunni eru án virðisaukaskatts.

Fáum við eigið lén?

Í Stór keyrir kerfið á léni félagsins, til dæmis pila.felag.is. Í hinum pökkunum fær félagið undirlén hjá okkur.

Ekki viss hvaða pakki hentar?

Sendið okkur línu og við förum yfir það með ykkur.

Veljið pakka

Við höfum samband, setjum upp vef félagsins og prufan hefst. Ekkert er rukkað á meðan.

Pakki
Greiðsla
Félagið